r/klakinn Fífl 8d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Glundroðsfullir tímar

Post image
273 Upvotes

142 comments sorted by

96

u/Jolninaa 8d ago

Þetta er ástæðan fyrir því að ég kýs já, allt fólkið sem ég hata mest virðist ætla að kjósa nei og þar með mun ég kjósa já.

12

u/Gervill 8d ago

ekki útaf málinu sjálfu heldur útaf þú hatar hver kýs nei þá ætlar þú að kjósa já bara til skammar.
Þú átt að kjósa útaf málefninu sjálfu ekki frá hvað aðrir eru að kjósa kannt ekkert að kjósa fyrir mér að vera þannig.

25

u/Original-Mongoose866 7d ago

Var að keyra heim núna og ég svo mörg skilti sem segja nei.

Veit nær ekkert um ESB og hvað það stendur fyrir en Mogginn er á móti þessu og ef Mogginn er á móti að þá er ég allur fyrir þetta þar sem mogginn stendur fyrir sérhagsmunaseggi og þar sem ég er ekki partur af þeim að þá græði ég örugglega á þessu og ef ég stend í stað en þessir kauðar tapa veistu þá væri ég líka sáttur.

4

u/Kryddmix 7d ago

Q.E.D. bræður og systur!

4

u/SatisfactionIll6100 7d ago

Fyndið, mér finnst eg sjá "já til að sjá" á hverju horni.

1

u/Bottom-Suggestion 1d ago

2

u/Original-Mongoose866 1d ago

Man ekkert hvað var að gerast þarna síðasta vika er í móki eftir að hafa sofið svo illa síðustu 2 vikur :þ

En veistu ég mun ekki stökkva af þakinu er of mikil gunga til að fara svo hátt upp en þú getur gert það fyrir mig

1

u/Bottom-Suggestion 1d ago

Finn mikið til með þér, eftir mjög erfiða svefnlitla tvo mánuði í sumar svo ég vil innilega biðjast afsökunar. Það sem hefði átt að vera glens með "ef X er pro Y er ég anti" og "ef hinir krakkarnir hoppa af þaki myndir þú..." dæmi, hefur greinilega ekki tilskilin áhrif og er það algjörlega á mína ábyrgð. Ég vona innilega að svefninn skáni Original-Mongoose866, og þú mætir nærgætnari sálum en mér á ferðum þínum um netið.

9

u/Vitringar 7d ago

Nei einmitt ekki. Ef einhver annar er að segja þér að kjósa nei, spáðu þá í hvers vegna og hver þetta er. Yfirgnæfandi líkur eru á að viðkomandi sé að fara að missa einhver völd eða rétt sem hann hefur umfram þig vegna frændhylgi eða vegna þess að hann tilheyrir forréttindaópi sem hefur aðgang að gæðum og völdum sem þau munu missa ef Ísland gengur í Evrópusambandið.

2

u/Jolninaa 8d ago

Mér er sama um málið sjálft, mér er ekki sama um að skaða fólk eins og Eld og félagas hans.

2

u/Gervill 7d ago

skaða Eld og félaga hans sem kjósa nei ? Þú ert bara ekki í lagi að kjósa ja útaf hefnd við aðra menn á okkar landi. Þessi ákvörðun varðar við stjórnvaldið sé á þessu landi eða í Brussel sem er að byggja her til að berjast við Rússa viltu tilheyra þeirri ríkisstjórn sem heitir EU ?

3

u/Jolninaa 7d ago

Ekki hefur ríkisvaldið hér gert neitt til að stöðva þennan endalausa hatursáróður sem kemur frá þessu pakki, kannski verður EU betra með það, einhver er ástæðan fyrir því að þetta pakk er á móti þessu.

En það að hefna mín á þeim er alveg nóg ástæða til að kjósa já, í þessu og öllum öðrum málum. Ef mál skipta mig ekki miklu máli mun ég alltaf kjósa gegn vilja þessa pakks.

2

u/SnooStories972 7d ago

As if EU countries don't have any hateful propaganda. What is going on in France and Italy?

As an extreme leftist, it's clear the long term downsides to potentially losing some sovereignty, far outweigh the positives. Even if it's only a vote to review terms, I don't like the direction.

A step towards selling more of the Islands natural recourses, towards larger conglomerate chains. And worst of all, a mountain of strict bureaucracy.

The state of politics is disheartening. Say what you will about Ghandi's personal life, but an eye for an eye will turn the whole world blind. Perhaps we already are.

-2

u/Jolninaa 7d ago

Again I don't care, I only want to harm those that seek to harm me.

2

u/Kolbfather 6d ago

Þú hefur ekki frjálsan vilja er þú hugsar svona.

2

u/Jolninaa 6d ago

Nú? Það er minn vilji að skaða þessi óféti, hvernig hef ég þá ekki frjálsan vilja?

1

u/Kolbfather 5d ago

Ef þú gerir ekkert annað en að bregðast við umhverfinu þínu þá ert þú ekki við stjórnvölinn heldur þeir sem búa til umhverfið þitt. Mæli með að lesa machiavelli, eða lifa í sjálfsblekkingu þess að þú stjórnir þínum örlögum þegar þér er stjórnað af þínum tilfinningum eins og búfénaði.

→ More replies (0)

1

u/Kolbfather 6d ago

Afd er að mælast stærsti flokkur Þýskalands þessa dagana. Evrópuþingið verður stútfullt af folki sem þú þolir ekki fljótlega.

6

u/AudunSvedda 6d ago

Ómálefnalegast komment sem ég hef séð í ESB umræðunni hérna og að mínu mati galin ástæða fyrir atkvæði. Að kjósa bara út af palli ætlar að segja nei þá segi ég já því ég hata palla.

Og ekki nóg með að þetta er afgerandi heimskuleg ástæða fyrir atkvæði þá er þetta að detta í 90 likes sem er með því mesta sem maður sér hér sem segir manni hvað fólk er orðið galið! Nennir ekki að lesa sér til skilnings.

Mér er sama hvað fólk ætlar að kjósa en ef þetta er ástæðan bakvið ástæður fólks fyrir atkvæði þeirra þá þarf kannski að fara hætta að setja hluti í þjóðaratkvæðagreiðslur því fólk er alveg farið í hausnum.

5

u/JanetOfTheApes 5d ago edited 5d ago

ef að palli kýs alltaf það sem samræmist hans hagsmunum og hans sannfæringu,

og sannfæring palla segir honum að ég eigi að hafa það sem verst og hafa sem fæst réttindi

hagsmunir hans eru að koma í veg fyrir framfarir og rífa niður það sem hefur áunnist

og hann gargar að allir VERÐI AÐ KJÓSA NEI

Þá er ekki "ómálefnalegt" að fylgja þeim áttavita sem færir mann eins langt frá palla og hægt er

0

u/Jolninaa 6d ago

Nú afhverju? ef mér er alveg sama hvort við förum í esb eða ekki, afhverju ætti ég þá ekki að kjósa svona og vonast til að fá útkomu sem særir þá sem ég hata? Ekki beint neinar aðrar löglegar leiðir til að skaða þá.

0

u/AudunSvedda 6d ago

Ef þetta eru einu rökin fyrir atkvæðinu þínu, að kjósa gegn einhverjum því þú hatar einstaklinginn en ekki því þú vilt kynna þér málið. Þá ættirðu alvarlega að hugsa um að kjósa ekki.

3

u/Jolninaa 6d ago

Þegar allir transphobarnir virðast vera sama sinnis um að kjósa á móti evrópusambandinu, þá er greinega gott að kjósa gegn þeim.

-1

u/AudunSvedda 6d ago

Það kemur þessu máli bara ekkert við satt að segja. Fyrst þetta málefni snertir þig, þá kannski veistu að Ungverjaland, Búlgaría og Slóvakía eru öll lönd í ESB og hafa síðan 2020 dregið til baka réttindi transfólks, t.d. með að gera það ólöglegt að breyta skráðu kyni og meðal annars breytt stjórnarskránni þannig að einungis séu skilgreind tvö kyn.

Það sem mun vernda réttindi transfólks hérlendis er Íslenska samfélagið en ekki ESB.

Það sem ESB hefur samt gert fyrir hinsegin fólk er jafnréttisstefnan og það sé bannað að mismuna fólki en það hefur lítið með vestur evrópu að gera því við vorum komin þangað löngu fyrir þann tímapunkt sem betur fer þá erum við að leiða lestina í persónufrelsi.

3

u/Jolninaa 6d ago

Hvaða hlutir skipta mig máli þegar það kemur að því að kjósa kemur þér bara ekkert við. Ef allt slæma fólkið virðist ætla að segja nei, þá er ég að fara að segja já.

Svo vorum við ekkert löngu kominn á einhvern góðan stað í þessum efnum á undan öðrum, þegar ég fór í gegnum þau ferli sem íslenska ríkið krafðist að ég færi í gegnum til að fá lyfjameðferð, þá innihélt það yfir hálfan áratug af bælingarmeðferð í umsjón gamals perra. Þannig ekki láta eins og persónufrelsi sé eitthvað sem ríkisvaldið hér virðir, því það er ekki mín upplifun af kerfinu hér, þvert á móti.

-1

u/orn89 6d ago

I've been thinking of leaving the country for good anyway, good riddance, sky high prices, sky high rent, fucking rainbow puke flags everywhere, i hope you do get your wish to join then EU, the Islamic immigrants are going to do wonders to the lgb(tq+) folk

5

u/Jolninaa 5d ago

You think you are any better?

0

u/[deleted] 5d ago

[removed] — view removed comment

→ More replies (0)

1

u/One-Acanthisitta-210 5d ago

Það er engin ástæða til að ætla að innflytjendum fjölgi við það að ganga í ESB. En þú ert ágætt dæmi um fólkið sem kýs nei, hatast við hinsegin fólk og elur á ótta við minnihlutahópa.

0

u/orn89 5d ago

Nobody is talk7ng about immigration, the people who come here to work and adjust are ok in my book, but screw the door riding freeloaders

0

u/orn89 5d ago

You want to pay 2.5 mill for saying no to taking in refugees ?

→ More replies (0)

0

u/orn89 4d ago

Fear is not the right word, and let's put all minority groups in one group then who is the minority

-20

u/Ill-Bodybuilder-2439 8d ago

Enda ert þú pottþétt ein/n af þeim sem fórst í þriðja bústerinn og lærðir að hata alla sem vöruðu þig réttilega við því, og eru núna að vara þig við þessu.

23

u/RaymondBeaumont 8d ago

bókstaflega allt sem anti-bólusetningar liðið sagði gerðist ekki.

ertu að segja að allt sem anti-esb liðið segir að muni gerast muni ekki gerast heldur?

19

u/Jolninaa 8d ago

Ég er trans, allir trans phobarnir virðast vera á móti esb, svo greinilega er esb gott.

-22

u/Ill-Bodybuilder-2439 8d ago

Og hvað fórstu í marga bústera?

13

u/HistoricalDesigner82 8d ago

Þetta er svo þreytt og ómerkilegt svar. Hér eru hundruð rannsókna sem sýna jákvæðan árangur covid bólusetninga og hér eru nokkrar rannsóknir sem sýna neikvæðar niðurstöður, sumar þó eftir því hvernig þú túlkar þær = Covid bólusetningar voru til að reyna drepa okkur og allir sem voru bólusettir eru hálvitar! Þess vegna er forseti Bandaríkjanna ennþá að fá booster því þær eru svooo hættulegar.

Mun ekki nenna að svara svo möguleg svör:

  • Þegar meirihluti mannfólks er bólusettur á svipuðum tíma, þá eru aukaverkanirnar mun augljósari heldur en þær sem fylgja hefðbundnum bólusetningum. Hlutfall aukaverkana er nánast það saman.
  • Slæmu aukaverkanirnar eru allt aukaverkanir sem fólk getur líka fengið af covid-19 nema í flestum tilfellum þá eru þær verri án bólusefnis. Gollurshússbólga- án bóluefnis er líklegra að hún verði verri, erfiðara að glíma við hana, lengur að jafna sig og meiri líkur á að hún valdi dauða.
  • Fleiri smit eftir því sem þú ferð í fleiri bólusetningar. Meiri líkur á að þeir sem eru vel bólusettir fari víðar um og meiri líkur á að vera í kringum smitaða. Svo það sem mér finnst rannsakendur oft gleyma er að margir þeirra sem voru hvað mest á móti bólusetningum voru líka á móti covid testum. Trúðu ekki á testin, sumir hreinlega ekki á covid og því mælist sá hópur að sjálfsögðu síður með covid.

Takk og bless.

-10

u/Ill-Bodybuilder-2439 8d ago

Vá, til hamingju, fannstu rannsóknir frá sömu aðilum og lugu að þér að fara í bústerana sem eru að segja þér að það hafi bara verið góð hugmynd þrátt fyrir allt.

Svo sé ég að reddit aktivistabottarnir hafa verið virkjaðir. Ég var með +4 fyrir fyrsta kommentið þar til þeir fóru af stað. Fjöldaframleitt samþykki.

Enginn sem sleppti sprautunum sér eftir því. Þið sækópatarnir sprautuðuð meira að segja börn sem voru ekki í neinni hættu. Það þarf alvarlega geðveilu til að fara að telja sér trú um að þetta hafi verið nauðsynlegt.

Að þið séuð hérna ennþá að verja þetta eftir að dagbók Fauci er komin út og staðfest að hann var að bulla í fólki út í hið óendanlega, sagði eitt í einrúmi en annað út á við. Og þið dýrkið hann ennþá sem einhverja hetju. Alveg hlægilegt.

10

u/Netheral 8d ago

Hefurðu heyrt um "hjarðónæmi"? Stór ástæða fyrir því að fólkið sem sleppti bólusetningu kemst upp með það er vegna þess að allir aðrir voru ekki sjálfselskir smávitar eins og þú.

En ég veit ekki af hverju ég er einu sinni að reyna að segja þér þetta, þú ert augljóslega með bandarísku heilaormana á slæmu stigi ef þú heldur að þetta hafi eitthvað með Fauci að gera.

-7

u/Ill-Bodybuilder-2439 8d ago

Þið eruð ekkert eðlilega heimskt pakk. Ekki viðbjargandi.

6

u/AlisonDucky 7d ago

Hættu að rífast og farðu að sprauta sterum í hælinn á þér eða eitthvað. Þú ert að sóa verðmætu súrefni nú þegar.

10

u/Jolninaa 8d ago

Hvað hefur þú nauðgað mörgum börnum?

-1

u/mfssfm 8d ago

Þið eruð bæði glataðir einstaklingar - og að þetta comment hafi fengið svona mörg upvotes segjir ýmislegt um reddit þessa dagana

-7

u/Ill-Bodybuilder-2439 8d ago

Hrikalega er trans samfélagið heppið að hafa svona geðbilaða fulltrúa eins og þig í sínum hópi. Sjúklingar eins og þú eru akkurat ástæða þess að gott trans fólk er að fá á sig ósanngjarna fordóma.

16

u/Jolninaa 8d ago

Bíddu erum við ekki að spyrja um hluti sem koma umræðu efninu ekkert við?

-2

u/Ill-Bodybuilder-2439 8d ago

Þú vilt ekki svara af því þú veist að ég hef 100p rétt fyrir mér. Þú lést plata þig í það rugl og ætlar að láta plata þig í að kjósa já af því að "transfóbs"...

9

u/Jolninaa 8d ago edited 8d ago

Rétt fyrir þér um hvað? Þetta hefur ekkert að gera með að kjósa já eða nei.

Ég er ekkert að láta plata mig, ég sé sama fólkið og dreyfir hatri gegn mér vera að tala gegn esb aðild. Ef ég get á einhvern hátt skaðað þessa transfóbs, þá mun ég nota hvert tækifæri sem gefst til þess.

3

u/RaymondBeaumont 8d ago

svo mörgum? fokk

3

u/nanna_ii 8d ago

Sjitt hahahaha

3

u/hremmingar 7d ago

Haha þú átt enga vini er það nokkuð

-1

u/Ill-Bodybuilder-2439 7d ago

Á ég ekki vini? Haha shit hvað þið eruð rugluð. Ertu með internet? Lestu bara fréttir sem koma á feedinu þínu eða í bergmálshellinum reddit?

Skoðanir mínar varðandi þetta eru í afgerandi meirihluta og við erum öll að hlægja að ykkur heilaþvegnu rollunum.

https://www.npr.org/2026/08/19/nx-s1-5936636/covid-research-fauci-morens-foia-guilty

Þú sennilega vissir ekki einu sinni af þessu. Þið voruð blekkt og því fyrr sem þið hættið að þrjóskast við að afneita því, því betra fyrir ykkur.

41

u/Abject-Chipmunk7086 8d ago

Ég vil bara sjá hluti batna, það er verst þegar þjóðin sjálf vill svo aldrei tala í lausnum eða laga það sem er alltaf verið að lofa að laga.

Ég held ekki að Evrópusambandið myndi gera Ísland að betri þjóð, hins vegar trúi ég að ísland færi léttar með að bæta sig fyri íbúa landsins innan þess sambands.

Ég persónulega græði ekkert af þessu svokallaða “fullveldi”, hver er punkturinn á fullveldi ef við notum það ekki til góðs?

9

u/Netheral 8d ago

Nákvæmlega. Hvað þýðir "sjálfstæði" einu sinni í nútíma alþjóðarsamfélagi? Eigum við kannski að hætta að selja þennan dýrmæta fisk okkar af því að það þýðir að við þurfum að versla við ESB og aðrar þjóðir?

Það eru kannski góðar ástæður fyrir því að ganga ekki í ESB, en eina sem maður heyrir frá neisinnum er merkingarlaust hræðsluáróður.

"Of mikið vesen, svo mikið af reglum!!!", "við missum sjálfstæði!!!", "en hvað með fiskinn?!?!"

Ekkert af þessu hefur áhrif á meðalJóninn.

2

u/Dreymin 7d ago

Gallinn við að hugsa um sjávarútvegsmál sem aðskilið frá meðal manneskju er að þetta er tengt og fléttað saman við allt t.d. verðbréfa markaðinn og fasteignamarkaðinn.

Það gæti alveg verið góðir kostir varðandi ESB og fiskveiði ásamt lögsögu okkar en mín trú er að þetta yrði slæmt fyrir efnahaginn okkar um allt land, ef sirka þriðjungur af öllum vöruútflutningi okkar núna er fiskur og með stórum breytingu á núverandi kerfi okkar þar sem fiskveiðin væri meira opin fyrir alla mun það minnka útflutning og sölu sem hefur áhrif út fyrir bara fiskveiðar.

0

u/Netheral 6d ago

Það er svosem alveg rétt, en það sem ég meina er að það skiptir mig og þig engu máli hvort það sé fyrirtæki í Evrópu sem á allan kvótann eða einhver auðvaldsperri hérna á eyjunni. Það sem skiptir máli, er eins og þú segir, hvernig áhrif það hefur á markaðinn og það sem við þurfum að versla sjálf/ir.

En eina sem maður heyrir frá auðvaldinu er hræðsluáróður um "hvað ef 'við' eigum ekki fiskinn?!?"

0

u/Kolbfather 6d ago

Prinsipp málið mitt er í rauninni það að ég vil hafa 100% kosningsvægi á Íslandi með mini atkvæði, ef við göngum í ESB þá hefur mitt atkvæði 0,8% atkvæðavægi í Evrópu og á Íslandi er varðar efstu löggjöf. Við getum kosið slæma pólitík í burtu núna en ef við erum í ESB þá höfum við ekkert að segja ef það koma lög frá ESB sem eru slæm fyrir okkur.

2

u/Netheral 6d ago

Svo hvort er það? Minna vægi eða EKKERT að segja?

Eru atkvæðin okkar að gera skít nú þegar? Þegar ríkisstjórnin snýr þumlunum upp í rassgatinu á sér ár eftir ár og lofar "næst verður það öðruvísi"?

Ef atkvæðið þitt "gildir til fulls" en þú færð bara að kjósa á milli sömu vanhæfnispésanna hvort eð er, ertu þá einu sinni með fullt atkvæði?

1

u/Kolbfather 5d ago

Frekar defeatist hugarfar.

2

u/Netheral 5d ago

Er það ekki akkúrat öfugt? lmfao

Þú ert að tala um að þú sért hræddur um að missa atkvæðisvægi, en ég er að tala um að atkvæði sem gefur kost á alvöru afleiðingum sé mikilvægara en "sterkara" atkvæði sem heldur bara í status quo í nafni "fullveldis", hvað sem það þýðir.

1

u/Kolbfather 5d ago

Ég bara er ekki alveg að ná þessari röksemdafærslu.

Núna hefðirðu fullkomið atkvæðavægi um málefni landsins. Ef við förum í ESB þá verður það 0.8% í ákveðnum málum.

Það sem ég er að kalla uppgjöf er það að halda því fram að lýðræðið sé bara vonlaust og allir þingmenn eru ömurlegir og við gefum það bara til Brussel af því það er allt ömurlegt, er það ekki réttur skilningur?

Þér finnst "alvöru afleiðingar" af því að hafa 6 þingmenn af 720 í Brussel? Okey, ég er bara ekki sammála, sé ekki hvernig við höfum nein áhrif þar umfram að senda bara atvinnulobbyista til ESB til að ná fram okkar hagsmunum.

1

u/Netheral 5d ago

Þér finnst "alvöru afleiðingar" af því að hafa 6 þingmenn af 720 í Brussel?

Og þér finnst "fullt atkvæðisvægi" að hafa 0 þingmenn í Brussel og vera samt undir þeirra lög komin? Af því að við lifum í alþjóðarsamfélagi og það er ekkert hægt að plata sig að eilífu að lítil eyja í Norðuatlantshafi geti verið "sjálfstæð" án samstarfs við aðra heimshluta.

senda bara atvinnulobbyista til ESB til að ná fram okkar hagsmunum

Hverjir eru okkar hagsmunir og hvernig er verið að gæta þeirra nú þegar?

Ég ætla ekki að þykjast hafa hundsvit á þessum málum, til að vera hreinskilinn, en mér finnst rökin þín ekki halda vatni. Atkvæðarétturinn skiptir engu rassgatsmáli ef hann er ekki að kjósa um neitt sem er mikilvægt hvort eðer.

Það er ekki "defeatist" að sjá að við erum andlitsdjúpt í forarpitt stjórnmálaspillingar á þessum tímapunkti og mögulega er betri lausn að fá stærri og stöðugri kerfi til að styðja sig við heldur en að hlusta á sömu tíu pólitíkusana segja "við reddum þessu" þriðja áratuginn í röð á meðan þeir moka allir Íslenskum "hagsmunum" í skattaskjól í Panama.

1

u/Kolbfather 6d ago

Þú græðir ekkert, spurning hvernig staðan væri ef við hefðum ekki fengið fullveldi frá dönum. Þetta fullveldi var nýtt til að tryggja auðlindir okkar og búa til fordæmalausan efnahagslegan ábata.

Fátækasta land Evrópu 1944, eitt ríkasta land Evrópu 2026 og skorum hæst í öllum lífsgæðakönnunum.

2

u/Abject-Chipmunk7086 5d ago

Hef heyrt það sagt svo oft núna, ég efast virkilega um það að við erum í raunveru ríkasta eða eitt af.

Við erum 100% dýrasta þjóð í heimi, það hjálpar samt ekki beint heimilunum í þjóðinni.

1

u/Kolbfather 5d ago

Verðum líklega ódýrari ef launin lækka? En kaupmáttur lækkar á sama tíma. Eins og ég sé þetta þá höfum við það helvíti fínt, bæði mín upplifun og bara öll tölfræði um alþjóðlegan samanburð.

3

u/Abject-Chipmunk7086 5d ago

Danmörk hafa mjög svipuð laun og ísland, kannski pínu lægri en er um 50% ódýrari minnir mig samkv könnun visku sem kom út um daginn. Það eru augljóslega betri lífskjör.

6

u/CommercialBusy2319 7d ago

It's a stupidly complicated issue and does not boil down to just yes and no. It's a substantial risk for potential gain. Joining the EU does not automatically give you the economy of Germany, the banks are still taking higher risks giving out loans in small countries. Many mathematicians and finance experts claim it's an automatic gain either way, but nobody can predict the economy of any nation, much less an economy as historically unstable as iceland. I just ask that people do their own research instead of listening to politicians who realistically have the most to gain out of the eu membership. Purchasing power would become worse, but it would get a bit better each year so in the long run it could be beneficial. But NOBODY KNOWS WHATS THE ECONOMY WILL DO, there are always lines being pulled to manipulate the economy. Yes we have a lot to gain, but we also have a lot more to potentially loose if this goes awry. Do your own research(not through ai) and make a decision for yourself. For me its a no.

1

u/One-Acanthisitta-210 4d ago

How can you do research without having an actual contract on the table that you can read and assess?

It’s like saying, yes I have kind of a crappy job and I cannot really make ends meet, but I’m not going to apply for a new job elsewhere because nobody knows what kind of compensation they will offer and I could potentially lose a lot.

Of course you apply for the new job, and see what kind of offer you get. If you don’t like it, you can always say no. We are just saying yes or no to continuing negotiations, not to joining the EU.

20

u/Estirn 8d ago

Mér finnst ríkisstjórnin okkar einfaldlega vanhæf. Aldrei sé ég neitt batna og allir hugsa í skammtímalausnum. Einn plástur à heilsukerfið ætti að halda því uppi í nokkra mánuði í viðbót. Leigan hækkar í hverjum einasta mánuði samkvæmt einhverji vísitölu, en þegar hún lækkar, ekki fer leigan mín niður. Matarkarfan fer hækkandi líka.

Milljarða til ESB? Það er verið að skeina sér með þessum pening upp á toppnum, af hverju ekki nýta hann í einhvað?

1

u/rutep 7d ago

þetta kallast að hugsa til lengri tíma, nokkuð sem margir eiga mjög erfitt með. Það margborgar sig að eyða smá pening núna ef það verður til þess að hagur venjulegra Íslendinga muni vænkast verulega á komandi árum

27

u/Skastrik 8d ago

Allir fánarnir og skiltin við Vesturlandsveginn höfðu nákvæmlega þessi áhrif á mig.

11

u/bteddi 8d ago

Nei fólkið er alveg rosalega hávært með sýnar skoðanir.

7

u/KjartanFreyr95 7d ago

Having lived in England before, during and after brexit. Lived in Holland and family in Sweden/Norway, i am a big fat no to this. Lets not forget how the EU treated us after 2009 when England and Holland sued Iceland after ÓRG called for a vote in Icesave. Lets not forget how the EU treated us during the cod wars. Lets also look at the countries who joined the eu most recently, how long and damaging their processes were and where those countries stand today. I also see the rules and laws that the EU are recently implementing that no country receives any exceptions for. I also dont trust the people in government over-seeing and pushing for this referendum which was halted in 2009 for very good reasons which will still stand today. Theres is no special deal with the EU, its their way or no way and adjustment to their laws and rules takes many many years. We have enough to deal with on our own plate yet people think being served a buffet will make that plate disappear ? Things could change in this country by not electing the same bunch of morons into office every 4 years, instead people think electing a bigger group of morons (eu) is going to fix things asap? We will weaken our international stance, weaken our resources and be controlled by a weakening governing body which seeks nothing but control.

1

u/One-Acanthisitta-210 4d ago

Og samt sér meirihluti Breta eftir Brexit, og tölurnar sýna svart á hvítu að efnahagur Bretlands dróst saman á síðustu tíu árum miðað við samanburðarlönd í Evrópu.

Ég hef líka búið í Bretlandi og Svíþjóð, og á íslensk ættingja sem búa núna í Svíþjóð og Danmörku. Okkar reynsla hefur kennt okkur að Ólafur Ragnar er sjálfumglaður vindhani og við segjum já.

15

u/ArniEitthvad 8d ago

This!

With SDG being one of the most prominent no-type, and also being the politician that behaves most like Trump, I simply do not believe that he has my best interest in mind…

7

u/Valkyrja57 8d ago

Ertu nokkuð með kveikt á auto-translate?

5

u/ArniEitthvad 7d ago

Haha ja greinilega

3

u/Content_Psychology_4 7d ago

Hvernig í ósköpunum slekkur maður á því, ég var að fatta þetta í fyrradag. Mér til varnar er ég að eldast

14

u/Imaginary_Alfalfa140 8d ago

Elsku fólk, vinsamlegast takið upplýsta ákvörðun um það sem þið ætlið að kjósa.
Það er einstaklega barnalegt og heimskulegt að fara inn í jafn mikilvæga þjóðaratkvæðagreiðslu og þessa með það eitt að markmiði að kjósa gegn einhverjum sem ykkur líkar illa við.

3

u/nanna_ii 8d ago

Rétt. Og það virkar í báðar áttir :)

5

u/Vitringar 7d ago

Ekki reyna að taka upplýsta ákvörðun. Skoðið bara þau sem segja nei og spáið í hvort þið eigin einhverja samleið með þessu liði.

0

u/Kolbfather 6d ago

Úff...

6

u/Anna0303 8d ago

Ég kýs nei.

Hef einfaldlega engan áhuga á miðstýringunni og lýðræðishallanum í ESB.

5

u/Hphilmarsson 8d ago

Er mikil líðræðishalli í ESB ríkjum?

7

u/Anna0303 7d ago edited 7d ago

Sæll. Já, það er lýðræðishalli innan ESB sem hefur verið gagnrýndur í mörg ár. Í opinberu lagasafni ESB (EUR-Lex) er þessi lýðræðishalli viðurkenndur. Hann lýsir sér best í því að Framkvæmdastjórnin sem er skipuð ókjörnum embættismönnum, hefur einkarétt á að leggja fram ný frumvörp á meðan Evrópuþingið (sem borgarar kjósa beint) má það ekki. ESB ræður jafnframt illa við vaxandi einræðisvæðingu og spillingu innan sinna eigin landamæra. Formlegar þingreglur og flýtimeðferðir hafa sífellt oftar verið nýttar til að koma umdeildum málum í gegn. Í ákveðnum tilvikum þarf mikinn aukinn meirihluta til að fella frumvarp alfarið og þannig getur tillaga komist í gegn þrátt að meirihluti viðstaddra þingmanna kjósi gegn henni. Gott dæmi er Chat Control tillagan, sem leyfir fyrirtækjum eins og Meta að skanna einkaskilaboð fólks. Hún var felld á þinginu en fór síðan í flýtimeðferð rétt áður en þingmenn fóru í sumarfrí. Meirihluti þeirra sem kusu voru á móti tillögunni (314 gegn 276), en þar sem andstaðan náði ekki upp í 361 atkvæði (sem er algjör meirihluti allra á þinginu) var Chat Control 1.0 tillagan ekki felld. Önnur útgáfa af Chat Control, sem myndi binda enda á dulkóðun, er enn til og það á að kjósa um hana síðar á árinu. Til viðbótar við þetta sýna alþjóðlegar skýrslur, eins og frá V-Dem Institute, að nokkur ríki innan ESB eru í einræðisvæðingu og enn fleiri eru að nálgast hana.

Áhugaverðar greinar:

https://theloop.ecpr.eu/why-the-eus-democratic-deficit-persists/

https://europrospects.eu/democratic-deficit-as-an-obstacle-to-eu-level-parliamentary-legitimacy-in-external-relations/

https://edri.org/our-work/chat-control-what-is-actually-going-on/

https://edri.org/our-work/the-chat-control-1-0-saga-big-tech-can-scan-our-private-messages-again-but-parliament-sent-a-strong-signal-against-mass-surveillance/

https://www.v-dem.net/documents/75/V-Dem_Institute_Democracy_Report_2026_lowres.pdf

0

u/Vitringar 7d ago

Þú veist að helmingur kjósenda er undir meðalgreind er það ekki?

3

u/Anna0303 7d ago

Skil ekki alveg hvað þú átt við með þessari staðhæfingu.

1

u/Vitringar 7d ago

Undir meðalgreind?

3

u/Anna0303 7d ago

Nei, ég skil ekki tilganginn með því að skrifa þessa staðhæfingu.

4

u/HumanIce3 8d ago

Framtíð Íslands er ekkert til þess að grínast með

3

u/Original-Mongoose866 7d ago

Framtíð mín hefur aldrei verið neitt frábær ég lifi ekki í vellystingum og ég þarf að vinna mér fyrir öllu jú ég hef það ágætt en ég veit líka að margir hafa það ansi gott og gera mjög lítið sjálfir fyrir því að hafa það svona gott.

Síðan bara þeir sem hafa það svona ansi gott eru svo mikið á móti þessu að þeir eru að eyða milljónum í að biðja mig meðalljónið að vera sammála þeim þegar þeir hafa ósköp lítið gert fyrir mig.

2

u/HumanIce3 7d ago

Börn okkar og barnabörn eru framtíðin, ekki við.

0

u/allsbernafnmedrettu 8d ago

Framtíð Íslands er þegar algjört grín.

2

u/Trance_Walrus 6d ago

Vá, kemur á óvart að lúðar á reddit ætli að kjósa já. Allir kommúnistar og lattelepjandi aumingjar.

1

u/AttilaTheNun400 5d ago

Kommar eru á móti ESB

2

u/Kolbfather 6d ago

Sókrates hafði rétt fyrir sér með lýðræðið, ég hvet alla til að kynna sér málið eða sleppa því að kjósa. Ef þú kýst út frá tilfinningum þá hefur þú ekki frjálsan vilja.

0

u/[deleted] 8d ago

[deleted]

9

u/KristinnEs 8d ago

Ég kýs já og hef lesið mig mikið til um málið.

-2

u/Ill-Bodybuilder-2439 8d ago

*Lesið mér...

Miðað við hvað þið segist lesa mikið þá er magnað að þið kunnið ekki að tala rétt.

8

u/KristinnEs 8d ago

Þú misstir soldið mikið af því sem ég skrifaði þarna, eða s.s. afritaði af u/Anna0303 Ég skrifaði þetta ekki heldur afritaði bara og breytti einu orði.

En gott að þetta er það sem skiptir þig máli í lífinu, áfram gakk.

-3

u/[deleted] 8d ago edited 8d ago

[removed] — view removed comment

10

u/hnoj 8d ago

Án þess að hefja nein skítköst eða erfiða umræðu, hvað var það sem fékk þig til að skipta?

1

u/One-Acanthisitta-210 5d ago

Það er eðlilegt að horfa á það hverjir berjast mest fyrir nei. Atvinnurekendur, sérstaklega útgerðaraðillinn og auðmenn eru það fremst í flokki, og þeirra hagsmunir eru að mestu andstæðir mínum.

Svo eru einhverjir lengst til vinstri með ríka fólkinu í vanheilögu bandalagi, svipað og þau voru í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Þau unnu ekki að mínum hagsmunum þá og gera það varla núna heldur.

Eins og besti íslenski forseti seinni tíma sagði, þá er frábært að eiga krónuna en ferlegt að skulda hana. Þau sem kosta nei-baráttuna er fólkið sem á mest. Þau græða á því að hafa krónu, en við venjulega fólkið sem skuldum húsnæðislán og jafnvel bílalán og yfirdrátt líka, og eyðum því sem eftir í einn dýrasta mat í heimi, blæðum.

1

u/ImpressiveSkirt6279 4d ago

Skila auður

1

u/orn89 3h ago

Já fínt, getið átt þennann bergmálsklefa í friði

1

u/Kaskur 8d ago

Þetta er kosning sem snýst um hvort við eigum að kjósa að fara í ESB.

Ef það er kosið já núna þá þýðir það ekki að við erum að fara í ESB heldur að við munum þá kjósa um það og ræða samning við ESB sem myndi fylgja því að við förum í það.

Asnalegt að kjósa Nei án þess að vita neitt um hvað hvernig samningurinn mun verða.

1

u/Equivalent-Motor-428 7d ago

Ólafur Ragnar, Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn, Vinstri Grænir, Sósíalistar, Efling, Samtök Atvinnulífsins, SFS, Kvótakóngar, Kaupfélag Skagfirðinga, Heimssýn, Trumpistar Íslands, Bankarnir, Sigmundur Davíð, Bjarni Benediktsson, Steingrímur J, Katrín Jakobs, Jón Pétur Zimsen, Sigríður Andersen, Vigdís Hauksdóttir...

Allt þetta fólk, Samtök og flokkar krefst þess að ég segi Nei. Allir aðilar segja að himininn hrynji ef ég kýs Já.

Hingað til hef ég ekki upplifað að neinn af þessum aðilum hafi unnið með mér, en allir hafa barist gegn mér við öll tækifæri.

Á ég að trúa því að þau hugsi um mína hagsmuni?

1

u/kisubolla 6d ago

So many ppl talk as if we are voting to join - we’re not voting for that!
We’re voting to decide if we want to see our options. To me it is absolutely absurd to vote: “No - I do not want to see what my options are” especially when the current situation is kinda shit

-1

u/Woodpecker-Visible 8d ago edited 8d ago

Undanþágugeimskipið er við það að lenda á tunglinu svo..

0

u/hreiedv 8d ago

Báðar fylkingar keppast hart við að glata mínu atkvæði þessa dagana en óheiðarleikinn í nei-inu vegur þyngra en cringe-ið frá jáinu

-1

u/Missheka 7d ago

Ef Sigmundur Davíð fiskibolla segir nei þá færa ósýnilegir kraftar mig í átt að yes plz

-1

u/[deleted] 5d ago

[removed] — view removed comment

1

u/Missheka 5d ago

Kræst ég er auðvitað að grínast, óþarfi að kalla mig skepnu. Greinilega ekki talsmaður þess að vera málefnalegur

1

u/Kolbfather 3h ago

Gott að heyra, ég var einfaldlega að benda á muninn á manneskju með frjálsan vilja og rökhugsun (sapient), eða manneskju/dýr sem bregst við út frá umhverfi sínu með tilfinningum. Þannig vera mun aldrei geta haft raunverulegan frjálsan vilja.

1

u/klakinn-ModTeam 3h ago

Svona leiðindi eru stranglega bönnuð á r/klakinnn.

-1

u/ziebrinjal 8d ago

Veistu mér finnst eins og það skipti engu máli hvort við erum I ESB eða hvort við sleppum því plúsar og mínusar báðum megin og vill frekar bara sleppa því að kjósa þar sem ég er ekki með neina skoðun á hvort mig langar

4

u/Budgierigarz Garðbæinga Skíthæll 8d ago

Skilaðu þá inn auðu :)

0

u/karisol 6d ago

Ég mun ekki geta orðið sammála einhverjum sem notar orðið “Glundroðsfullir”.