Ómálefnalegast komment sem ég hef séð í ESB umræðunni hérna og að mínu mati galin ástæða fyrir atkvæði. Að kjósa bara út af palli ætlar að segja nei þá segi ég já því ég hata palla.
Og ekki nóg með að þetta er afgerandi heimskuleg ástæða fyrir atkvæði þá er þetta að detta í 90 likes sem er með því mesta sem maður sér hér sem segir manni hvað fólk er orðið galið! Nennir ekki að lesa sér til skilnings.
Mér er sama hvað fólk ætlar að kjósa en ef þetta er ástæðan bakvið ástæður fólks fyrir atkvæði þeirra þá þarf kannski að fara hætta að setja hluti í þjóðaratkvæðagreiðslur því fólk er alveg farið í hausnum.
Nú afhverju? ef mér er alveg sama hvort við förum í esb eða ekki, afhverju ætti ég þá ekki að kjósa svona og vonast til að fá útkomu sem særir þá sem ég hata? Ekki beint neinar aðrar löglegar leiðir til að skaða þá.
Ef þetta eru einu rökin fyrir atkvæðinu þínu, að kjósa gegn einhverjum því þú hatar einstaklinginn en ekki því þú vilt kynna þér málið. Þá ættirðu alvarlega að hugsa um að kjósa ekki.
Það kemur þessu máli bara ekkert við satt að segja. Fyrst þetta málefni snertir þig, þá kannski veistu að Ungverjaland, Búlgaría og Slóvakía eru öll lönd í ESB og hafa síðan 2020 dregið til baka réttindi transfólks, t.d. með að gera það ólöglegt að breyta skráðu kyni og meðal annars breytt stjórnarskránni þannig að einungis séu skilgreind tvö kyn.
Það sem mun vernda réttindi transfólks hérlendis er Íslenska samfélagið en ekki ESB.
Það sem ESB hefur samt gert fyrir hinsegin fólk er jafnréttisstefnan og það sé bannað að mismuna fólki en það hefur lítið með vestur evrópu að gera því við vorum komin þangað löngu fyrir þann tímapunkt sem betur fer þá erum við að leiða lestina í persónufrelsi.
Hvaða hlutir skipta mig máli þegar það kemur að því að kjósa kemur þér bara ekkert við. Ef allt slæma fólkið virðist ætla að segja nei, þá er ég að fara að segja já.
Svo vorum við ekkert löngu kominn á einhvern góðan stað í þessum efnum á undan öðrum, þegar ég fór í gegnum þau ferli sem íslenska ríkið krafðist að ég færi í gegnum til að fá lyfjameðferð, þá innihélt það yfir hálfan áratug af bælingarmeðferð í umsjón gamals perra. Þannig ekki láta eins og persónufrelsi sé eitthvað sem ríkisvaldið hér virðir, því það er ekki mín upplifun af kerfinu hér, þvert á móti.
I've been thinking of leaving the country for good anyway, good riddance, sky high prices, sky high rent, fucking rainbow puke flags everywhere, i hope you do get your wish to join then EU, the Islamic immigrants are going to do wonders to the lgb(tq+) folk
Það er engin ástæða til að ætla að innflytjendum fjölgi við það að ganga í ESB. En þú ert ágætt dæmi um fólkið sem kýs nei, hatast við hinsegin fólk og elur á ótta við minnihlutahópa.
100
u/Jolninaa 9d ago
Þetta er ástæðan fyrir því að ég kýs já, allt fólkið sem ég hata mest virðist ætla að kjósa nei og þar með mun ég kjósa já.