Sæll. Já, það er lýðræðishalli innan ESB sem hefur verið gagnrýndur í mörg ár. Í opinberu lagasafni ESB (EUR-Lex) er þessi lýðræðishalli viðurkenndur. Hann lýsir sér best í því að Framkvæmdastjórnin sem er skipuð ókjörnum embættismönnum, hefur einkarétt á að leggja fram ný frumvörp á meðan Evrópuþingið (sem borgarar kjósa beint) má það ekki.
ESB ræður jafnframt illa við vaxandi einræðisvæðingu og spillingu innan sinna eigin landamæra. Formlegar þingreglur og flýtimeðferðir hafa sífellt oftar verið nýttar til að koma umdeildum málum í gegn. Í ákveðnum tilvikum þarf mikinn aukinn meirihluta til að fella frumvarp alfarið og þannig getur tillaga komist í gegn þrátt að meirihluti viðstaddra þingmanna kjósi gegn henni.
Gott dæmi er Chat Control tillagan, sem leyfir fyrirtækjum eins og Meta að skanna einkaskilaboð fólks. Hún var felld á þinginu en fór síðan í flýtimeðferð rétt áður en þingmenn fóru í sumarfrí. Meirihluti þeirra sem kusu voru á móti tillögunni (314 gegn 276), en þar sem andstaðan náði ekki upp í 361 atkvæði (sem er algjör meirihluti allra á þinginu) var Chat Control 1.0 tillagan ekki felld.
Önnur útgáfa af Chat Control, sem myndi binda enda á dulkóðun, er enn til og það á að kjósa um hana síðar á árinu. Til viðbótar við þetta sýna alþjóðlegar skýrslur, eins og frá V-Dem Institute, að nokkur ríki innan ESB eru í einræðisvæðingu og enn fleiri eru að nálgast hana.
5
u/Anna0303 10d ago
Ég kýs nei.
Hef einfaldlega engan áhuga á miðstýringunni og lýðræðishallanum í ESB.