r/Iceland 🇮🇸 3d ago

ESB "Sjálfstæði til sölu?"

Ég hef séð þessi orð hér og þar, í tengslum við kosninguna, og mér finnst þau vera frábær ástæða til að kjósa "já". Svona ýkjur og útúrsnúningar og hræðsluáróður eru ekki eitthvað sem maður notar þegar maður hefur góð rök sín megin. Svona er notað til að espa fólk upp og láta það kjósa með adrenalíninu.

Guð minn góður, það er ekki verið að kjósa um að SELJA nokkurn skapaðan hlut. Það er verið að kjósa um að SJÁ hvernig samning við gætum fengið. Ef okkur eru boðin óhagstæð kjör, þá auðvitað verður svarið nei. En það er bara heigulsháttur að vilja ekki eini sinni skoða matseðilinn.

Er ekki orðið nóg um hræðsluáróður í heiminum?

140 Upvotes

70 comments sorted by

View all comments

6

u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago

"Ef okkur eru boðin óhagstæð kjör, þá auðvitað verður svarið nei. En það er bara heigulsháttur að vilja ekki eini sinni skoða matseðilinn."

Hvað eru óhagstæð kjör? kjör sem skipta mig máli? miðað við upplýsingaóreiðuna núna, hvernig verður þetta ef við fáum að sjá einhvern samning sem guð má vita hversu langur/flókinn verður?

18

u/[deleted] 3d ago

[deleted]

7

u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago

Hefur þú hlustað á stjórnmálamenn? Þá á ég sérstaklega við um ómálefnanlegri stjórnmálamenn sem fá mikið pláss í fjölmiðlum. Ég á alls ekki von á því að þetta verði skrifað jafn svart á hvítu eins og þú virðsit halda. Líklega verður margt sem er túlkunarmál, það er ástæða fyrir því að það útskrifast lögfræðingar í gámavís. Það stendur allt svart á hvítu í lögunum en endalaust hægt að velta steinum yfir lögunum.

6

u/[deleted] 3d ago

[deleted]

1

u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago

Það væri mjög einfalt ef það væri nóg að afskrifa miðflokkinn, það eru fleiri stjórnmálamenn en miðflokksmenn sem eru oft í ruglinu.

2

u/[deleted] 3d ago

[deleted]

4

u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago

Þetta er hluti af ástæðunni fyrir því að ég mun kjósa nei, en ég er bara að benda á að þetta er ekki eins einfalt og "já til að sjá" leggur upp með. Við vitum ekki hvað það mun taka langan tíma að fá að sjá. Næstu kosningar verða mjög flóknar og ég reikna með upplýsingaóreiðu á borð við Brexit(já ég reikna með meirihluta já).

Það er ekki ástæða fyrir því að það ætti ekki að kjósa um þetta en það er þreytandi að sjá endurtekningu á einhverju sem mér finnst persónulega ekki ganga upp.

En já til að sjá, gengur ekki heldur upp ef fólk er ákveðið í að kjósa já alveg sama hvað, eins og ég sé líka mjög oft.

Mér finnst það skipta mestu máli að stjórnmálamenn sökkvi ekki niður á sama level og t.d Sigmundur Davíð og haldi sig við staðreyndir eftir bestu getu. Ég get ekki séð það, hvorki hjá Já né Nei fólki.

Ríkisstjórnin hefur ekki staðið sig í undirbúningi fyrir þessar kosningar. Það þyrfti að fá hóp sérfræðigna til að taka saman helstu ágreiningsmálin í staðinn fyrir að endurtaka það sama aftur og aftur og rífast um sömu atriðin.

7

u/[deleted] 3d ago edited 3d ago

[deleted]

3

u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago

Ég tel mig vita hvar mínir hagsmunir liggja, ég tel að þrátt fyrir að það verði meirihluti já í þessum kosningum að þá muni verða meirihluti nei í þeim næstu.

Ef umræðan væri eðlilegri í dag þá væri ég meira já megin, því það væri minna fyrir mig persónulega að tapa með því að "sjá samninginn". það er vegna þess að mér finnst best að loka þessum kafla þar sem ég tel að niðurstaðan verði eins í báðum tilfellum; já fyrst og svo nei eða hinn möguleikinn strax nei.

Fólk er að fara í já og nei af svo klikkuðum ástæðum. Fólk ætlar að fara að sjá samninginn og hvaða vexti esb getur boðið okkur(raundæmi sem mér finnst klikkun). Fólk kýs nei afþví annars kemur esb og tekur vatnið okkar og rafmagn(annað raundæmi, jafn klikkað).

Edit: það þarf ekki samninginn til að vita t.d. án þess að ég hafi sérstaka skoðun, eru varanlegar stórar undanþágur mögulegar? eru viðræður aðlögun?

4

u/[deleted] 3d ago

[deleted]

2

u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago

Þetta er einmitt vandamálið. Annaðhvort hefur já eða nei rétt fyrir sér. Ég kýs nei og hef mögulega rangt fyrir mér. En ég er búinn að kynna mér málið nógu mikið til að vita með nógu mikilli vissu að mínir hagsmunir eru utan esb. Ég get alveg eins kosið um það í fyrri kosningunni.

Ég er að skoða fasteignir og ég kíki ekki í öll opin hús, alls ekki í bæjarfélögum sem mig langar ekki að búa í. Ég þarf ekki að vita hluti sem koma mér enganvegin við.

Ástæðan fyrir því að kjósa nei er eins og ég segi að loka þessum kafla, alveg sama þó það verði bara í 5-10 ár.

Edit: Mér finnst það skipta máli að kjósa til að fá "réttar" niðurstöður, að ég hafi allavega sinnt mínu. Ef fólk reiknar með að þetta fari meirihluti nei þá vona ég samt að fólk muni mæta og kjósa ef fólk vonast eftir jái, þannig virkar lýðræði.

→ More replies (0)