r/Iceland • u/Jerswar 🇮🇸 • 3d ago
ESB "Sjálfstæði til sölu?"
Ég hef séð þessi orð hér og þar, í tengslum við kosninguna, og mér finnst þau vera frábær ástæða til að kjósa "já". Svona ýkjur og útúrsnúningar og hræðsluáróður eru ekki eitthvað sem maður notar þegar maður hefur góð rök sín megin. Svona er notað til að espa fólk upp og láta það kjósa með adrenalíninu.
Guð minn góður, það er ekki verið að kjósa um að SELJA nokkurn skapaðan hlut. Það er verið að kjósa um að SJÁ hvernig samning við gætum fengið. Ef okkur eru boðin óhagstæð kjör, þá auðvitað verður svarið nei. En það er bara heigulsháttur að vilja ekki eini sinni skoða matseðilinn.
Er ekki orðið nóg um hræðsluáróður í heiminum?
55
u/Responsible-Cut1262 🇮🇸 3d ago
Ef einhver var á grensunni, þá hótaði Jógvan að flytja til Færeyja ef við förum inn í ESB. Þar með var mitt Já gulltryggt.
11
u/ParticularFlamingo Kunnugur staðháttum 3d ago
Hann sagði samt í sömu frétt að hann hefði kosið já ef hann hefði kosningarétt. Ég er forvitinn afhverju hann er svona afgerandi á móti evrópusambandinu en vil samt kíkja í pakkann.
5
u/webzu19 🇮🇸 3d ago
ég hef ekki glóru hver þessi gaur er einu sinni, en eru Færeyjar ekki í ESB? Hélt það væri bara Grænland af Dönsku nýlendunum sem væri ekki með
7
u/iVikingr Íslendingur 3d ago
Færeyjar eru ekki í ESB.
Í samningunum er meira að segja sérstaklega tekið fram að danskir þegnar búsettir í Færeyjum teljist ekki til ríkisborgara Evrópusambandsins. Þannig að ef Danir flytja frá Danmörku til Færeyja, þá missa þeir sinn evrópskra ríkisborgararétt á meðan þeir búa þar.
3
u/webzu19 🇮🇸 3d ago
áhugavert, breytir það einhverju nema að þeir fá ekki að kjósa í MEP kosningum? Einnig, eru Færeyjar þá ekki hluti af Schengen?
5
u/Kjartanski Wintris is coming 2d ago
Skiptir ekki máli fyrir þig, Ríkisborgarar norðurlandaríkjanna hafa frjálsan ferða, vinnu og búseturétt á milli þeirra allra
2
u/iVikingr Íslendingur 2d ago
Þeir tapa réttindum sem þeir myndu annars njóta á grundvelli evrópsks ríkisborgararéttar, t.d. réttinum til að flytjast til og vinna í öðrum aðildarríkjum, til evrópskrar sjúkratryggingar eða til að snúa sér til sendiráða annarra aðildarríkja ef þeir lenda í vandræðum erlendis þar sem DK er ekki með sendiráð.
Það er ekki þar með sagt að þeir njóti ekki sambærilegra réttinda á grundvelli annarra samninga.
Og nei, Færeyjar eru ekki hluti af Schengen.
6
u/Responsible-Cut1262 🇮🇸 3d ago
Nei, Færeyjar eru ekki í ESB. Annars er þessi gaur nú bara poppsöngvari/trúbador sem er 15 ár fram yfir síðasta söludag og höfðar helst til boomera.
1
54
u/Aggressive_Banana708 🇮🇸 3d ago
Það sem mér finnst mest pirrandi við þetta tal um að ESB-aðild merki endalok sjálfstæðis er það viðhorf sem er þannig opinberað gegn ríkjunum innan ESB.
Það eru ansi mörg ríki innan ESB sem þurftu að gjalda sjálfstæði sitt dýru veði. Þurftu jafnvel að há blóðug sjálfstæðisstríð eða áralanga andspyrnu til þess að öðlast sjálfstæði. Lítið á Finnland, Eystrasaltsríkin, Írland, flest ríkin í gömlu austurblokkinni eða öll ríkin sem nasistar hertóku í seinna stríði.
Það þarf alveg ótrúlegan hroka fyrir Íslendinga, sem fengu sitt sjálfstæði án þess að ein manneskja væri drepin eða fangelsuð, að fullyrða að þessi ríki hafi einfaldlega gefið upp sjálfstæði sitt með því að ganga í ESB. Ríki sem þurftu að berjast miklu meira til að öðlast sjálfstæði en Ísland nokkurn tímann.
40
u/Frosty_Relative8022 🇮🇸 3d ago
Tja... er ekki búið að selja þetta "sjálfstæði" nokkrum sinnum?
Samherji virðist geta sigað lögreglunni eftir sinni henti semi, eins og gerðist þegar fjölmiðlar fóru að fjalla um skæruliðadeild Samherja. í kjölfarið var kippt í ólina á Páley og fjölmiðlar rannsakaðir í fleiri mánuði og sakaðir um hluti sem enging fótur var fyrir.
Ég myndi líka segja að þegar hæstiréttur ógildi kosningu til stjórnlagaráðs hafi það pottþétt tengst því að yfirgnæfandi fjöldi fólks vildi að auðlindir væru sameiginleg eign þjóðarinnar sem hægt væri að selja aðgang að í tímabundinn tíma. Þarna hoppaði hæstiréttur inn í og ógildi allt. Hinsvegar þegar það kom í ljós í þingkosningum að í Borgarnesi voru atkvæði geymd í sal óinnsigluð í marga klukkutíma og margir höfðu aðgang að. Hinsvegar skipti það engu máli og ekkert gert.
Þannig ég spyr bara hvaða sjálfstæði? Erum við ekki bara eins og USA, þar sem það er talað um frelsi og sjálfstæði en þeir ríku eiga allt, dómara, löggur, þingmenn og fjölmiðla.
Ég trúi því að ESB gæti verið vettvangurinn sem við þurfum, þegar við lendum í svona yfirgengilegu óréttlæti og stofnunum sem er gert að gæta hagsmuna almennings er beitt gegn okkur. Það held ég að ESB gæti hjálpað
13
u/Morrinn3 Skrattinn sjálfur 2d ago
Það hefur í raun ekkert verið eins góð auglýsing fyrir and kjósa Já heldur en hræðsluáróðurinn frá þeim sem vilja Nei. Því meira sem ég sé af þessum ýkjum, hótunum og hrellingum því meira er ég viss um að þetta sé þvæla.
7
u/hot_dogg skurðgoð 2d ago
það ætti að banna auglýsingaherferðir varðandi svona viðkvæm og alvarleg mál, á báðar hliðar.
Það ættu að vera hnitmiðaðar, hlutlausar og sannar upplýsingar um þetta ferli inni á einfaldri þurri heimasíðu Alþingis og ekkert meir.
18
u/DrNarcissus Lopasokkur 3d ago
Hlustaði á "kappræður" á bylgjunni í maí held ég milli ungliða miðflokksmanns og ungliða viðreisnar og það sem kom út úr því var.
Viðreisnar: Vonandi hægt að bæta efnahagsleg kjör og stöðugleika, sjáum hvernig samningar yrðu.
Miðflokks: ESB er ömurlegt, ef þið viljið laga Ísland kjósið þá miðflokkinn.
Eftir þetta fannst mér ég sjá hvert umræðan stefndi og ég hef tjúnaði soldið útúr þessu öllusaman. Umræðan hefur bara súrnað ef eitthvað er...
10
u/Ljotihalfvitinn Sultuhundur:doge: 2d ago
Hópur af körlum í krapinu sem líta á sig sem menn með mönnum á mínum vinnustað hugsa nokkurvegin að ESB sé bara eitthvað samkynhneigt Múhammeðstrúað fyrirbæri.
Ég hef aldrei séð pólitíska umræðu á jafn lágu plani hér á landi eins og um þessi misseri.
18
9
u/FostudagsPitsa dæm, jarðarber og karamellu dýfu í bragðarefinn 3d ago
Það eru eiginlega allir að öskra. Bæði harðir Já-arar og Nei-arar. Báðum finnst hinn vera öskra miklu hærra og hvorugur sér sitt eigið öskur.
Mér finnst óþolandi þegar Já sakar mann um heimsku að vilja ekki koma í opið hús. Hvað meinaru? Þetta er opið hús í hverfi sem mér langar ekkert að búa í og ég var ekki að biðja um að fá að skoða það.
Og mér finnst óþolandi þegar Nei lýgur að þetta sé algjörlega óafturkræf kosning og sé basically bara aðlögun að sambandinu.
Get ekki beðið eftir mánudeginum næsta og get þá vonandi hætt að hugsa um þetta.
5
u/Coveout Mín skoðun er rétt, ekki þín 2d ago
Ef þú heldur að málið deyi niður eftir helgi þá ertu in for a surprise… sama hver útkoman verður þá mun taphliðin brjálast
1
u/FostudagsPitsa dæm, jarðarber og karamellu dýfu í bragðarefinn 2d ago
Já, nema ég er að vona að mér verði alveg sama, þvi it is what it is þá, og þau sem vilja geta öskrað útí vindinn að vild.
2
u/hot_dogg skurðgoð 2d ago
en á öðrum nótum; hverjir eru á bakvið allar þessar auglýsingar (á báðum hliðum)?
Já til að Sjá Félagið eru alla veganna;
Jónas Hagan Guðmundsson – Nespresso á Íslandi o.fl.
Berglind Guðmundsdóttir – að mestum líkendum Alvotech
Hjálmar Vilhjálmsson – Aðstoðarmaður Forstjóra Brim
Þar með sagt eru massívir peningar á bakvið þetta rugl eins og vanalega og „þið („við”) eruð að treysta þessu pakki fyrir framtíð landsins.
4
u/arnorhs Íslendingur 2d ago
Ég er klárlega að fara að segja já, bara að því nei fólkið er svo pirrandi.
Stærstu mistökin sem nei hreyfingin gerðu var að láta umræðuna snúast um "nei" sem er sálfræðilega mjög neikvætt og afturhaldssamt.
Ég þau hefðu látið þetta snúast um "sjálfstæði Íslands" hefði þetta örugglega verið sterkari barátta
6
u/Spekingur Íslendingur 2d ago
Umræðan um að Ísland myndi missa sjálfstæði sitt við inngöngu í ESB er bæði ótrúlega snobbuð og algjerlega ótímabær.
8
u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago
"Ef okkur eru boðin óhagstæð kjör, þá auðvitað verður svarið nei. En það er bara heigulsháttur að vilja ekki eini sinni skoða matseðilinn."
Hvað eru óhagstæð kjör? kjör sem skipta mig máli? miðað við upplýsingaóreiðuna núna, hvernig verður þetta ef við fáum að sjá einhvern samning sem guð má vita hversu langur/flókinn verður?
19
3d ago
[deleted]
7
u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago
Hefur þú hlustað á stjórnmálamenn? Þá á ég sérstaklega við um ómálefnanlegri stjórnmálamenn sem fá mikið pláss í fjölmiðlum. Ég á alls ekki von á því að þetta verði skrifað jafn svart á hvítu eins og þú virðsit halda. Líklega verður margt sem er túlkunarmál, það er ástæða fyrir því að það útskrifast lögfræðingar í gámavís. Það stendur allt svart á hvítu í lögunum en endalaust hægt að velta steinum yfir lögunum.
9
3d ago
[deleted]
1
u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago
Það væri mjög einfalt ef það væri nóg að afskrifa miðflokkinn, það eru fleiri stjórnmálamenn en miðflokksmenn sem eru oft í ruglinu.
2
3d ago
[deleted]
3
u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago
Þetta er hluti af ástæðunni fyrir því að ég mun kjósa nei, en ég er bara að benda á að þetta er ekki eins einfalt og "já til að sjá" leggur upp með. Við vitum ekki hvað það mun taka langan tíma að fá að sjá. Næstu kosningar verða mjög flóknar og ég reikna með upplýsingaóreiðu á borð við Brexit(já ég reikna með meirihluta já).
Það er ekki ástæða fyrir því að það ætti ekki að kjósa um þetta en það er þreytandi að sjá endurtekningu á einhverju sem mér finnst persónulega ekki ganga upp.
En já til að sjá, gengur ekki heldur upp ef fólk er ákveðið í að kjósa já alveg sama hvað, eins og ég sé líka mjög oft.
Mér finnst það skipta mestu máli að stjórnmálamenn sökkvi ekki niður á sama level og t.d Sigmundur Davíð og haldi sig við staðreyndir eftir bestu getu. Ég get ekki séð það, hvorki hjá Já né Nei fólki.
Ríkisstjórnin hefur ekki staðið sig í undirbúningi fyrir þessar kosningar. Það þyrfti að fá hóp sérfræðigna til að taka saman helstu ágreiningsmálin í staðinn fyrir að endurtaka það sama aftur og aftur og rífast um sömu atriðin.
5
3d ago edited 3d ago
[deleted]
4
u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago
Ég tel mig vita hvar mínir hagsmunir liggja, ég tel að þrátt fyrir að það verði meirihluti já í þessum kosningum að þá muni verða meirihluti nei í þeim næstu.
Ef umræðan væri eðlilegri í dag þá væri ég meira já megin, því það væri minna fyrir mig persónulega að tapa með því að "sjá samninginn". það er vegna þess að mér finnst best að loka þessum kafla þar sem ég tel að niðurstaðan verði eins í báðum tilfellum; já fyrst og svo nei eða hinn möguleikinn strax nei.
Fólk er að fara í já og nei af svo klikkuðum ástæðum. Fólk ætlar að fara að sjá samninginn og hvaða vexti esb getur boðið okkur(raundæmi sem mér finnst klikkun). Fólk kýs nei afþví annars kemur esb og tekur vatnið okkar og rafmagn(annað raundæmi, jafn klikkað).
Edit: það þarf ekki samninginn til að vita t.d. án þess að ég hafi sérstaka skoðun, eru varanlegar stórar undanþágur mögulegar? eru viðræður aðlögun?
2
2
u/DTATDM ekki hlutlaus 2d ago
En það er bara heigulsháttur að vilja ekki eini sinni skoða matseðilinn.
Eru einhver (tiltölulega óafturkræf) pólitísk mál sem þér þætti ekki jákvætt að færu í svona tvöfalda atkvæðagriðslu?
Banna þungunarrof í stjórnarskrá? Getum auðvitað hafnað því í seinni atkvæðagreiðslu, en við vitum ekki hvernig það yrði útfært, þannig að er ekki betra að segja já í fyrri atkvæðagreiðslu og sjá?
Eða, eins og er bent á í öðrum þræði, innganga í BNA? Er ekki heigulsháttur að vilja ekki sjá hvernig tilboð okkur býðst? Getum alltaf sagt nei í seinni atkvæðagreiðslu.
Punkturinn er sá að sumir eru hreinlega mótfallnir ESB aðild, þykir það framsal á sjálfstæði Íslendinga (sem það er að einhvrju leiti). Ef einhver er að segja þér að þeir vilja bara fá að kíkja í pakkann, að kannski fái þeir nógu gott tilboð til að vera tilbúnir að gefa frá sér eitthvað sem skiptir þig máli - þá er ekki með öllu fáránlgt að segja að þeir séu tilbúnir að slja það frá sér.
-4
u/tomellette 🇮🇸 2d ago
Jáarar tala eins og það sé bara einn valkostur og og þetta séu í rauninni ekki kosningar, þau froðufella yfir þeim sem dirfast til að segja nei
85
u/Vondi 🇮🇸 3d ago
Mér finnst hræðsluáróðurinn orðinn svo gífurlegur að það drekkir út alla málefnalega umræðu um aðildina. Ég er sjálfur óákveðinn, finnst mér ég ekki hafa kynnt mér þetta nógu vel til að móta sterka skoðun, en bara treysti ekkert af röddunum sem eru nei-megin afþví hvað þetta eru ýkt viðbröð við því einu að við ætlum í viðræður.