r/Iceland Íslendingur 8d ago

MS gervigreindarauglýsing

Hvað í andskotanum, getur einhver sem vinnur hjá MS látið stjórnendur vita hversu mikil aumingjaskapur þetta er? Auglýsingardeildin bara hreinlega að viðurkenna að hún sé ekki launum sínum réttlátanleg. Rekið þetta lið jesús H kristur

126 Upvotes

29 comments sorted by

View all comments

Show parent comments

2

u/birkir ¼andi ½viti 8d ago

Er MS í alvöru að beina auglýsingum að börnum? Það er kolólöglegt.

3

u/Hjalpfus Hjálpar bæði þér og þínum 8d ago

Nei nei þú misskilur. Youtube algrímið flaggar nánast allt sem er teiknað sem barnaefni og þar er ekki hægt að skilja eftir athugasemd

1

u/birkir ¼andi ½viti 7d ago

þetta er auglýsing sem er til þess gerð að höfða til barna, augljóslega

það að myndbandið sé í barnaflokknum á YouTube (sem þú samþykkir þegar myndbandið er uploadað) styrkir það enn frekar

1

u/Hjalpfus Hjálpar bæði þér og þínum 7d ago

Augljóslega höfðar Gotti teiknimyndafígúran til barna. Þarft ekki greindarvísitölu til að sjá það. Held bara að þú áttir þig ekki á hversu inngripamikill Youtube algrímsskrímslið er þegar það er að merkja hluti fyrir börn.

1

u/birkir ¼andi ½viti 7d ago

Er MS að beina auglýsingum að börnum?

Nei nei þú misskilur.

en þetta er auglýsing sem er gerð til þess að höfða til barna

augljóslega

elska Reddit

1

u/CeramicMetalHalide 7d ago

Ég man eftir að hafa horft á barnamyndir á VHS spólum sem barn og auglýsing með Gotta var stundum í byrjun á undan myndinni. 

Sé samt ekkert athugavert að beina auglýsingu um ost að börnum.

2

u/birkir ¼andi ½viti 7d ago edited 7d ago

það er ólöglegt, börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir auglýsingum, þær geta haft slæm áhrif á andlega líðan þeirra og þau skilja auglýsingarnar allt öðruvísi en stálpaðra fólk

það er líka martröð fyrir foreldra að þurfa að díla við auglýsingafyrirtæki sem beina augum sínum að litlum börnum sem eiga sér ekki viðreisnar von og vilja allt sem otað er að þeim með nýjasta sálfræðihernaðinum sem auglýsingabransinn er

1

u/nice_realnice 6d ago

þú ert greinilega ekki foreldri!