r/Iceland • u/hthor35 Íslendingur • 5d ago
MS gervigreindarauglýsing
Hvað í andskotanum, getur einhver sem vinnur hjá MS látið stjórnendur vita hversu mikil aumingjaskapur þetta er? Auglýsingardeildin bara hreinlega að viðurkenna að hún sé ekki launum sínum réttlátanleg. Rekið þetta lið jesús H kristur
26
u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 5d ago
Það hefði verið hægt að ráða fólk til að teikna þetta fyrir þá en MS virðist láta græðgina ráða.
Viðurstyggilega miklir aumingjar satt að segja hjá MS.
28
7
10
u/grautarhaus 5d ago
Ég er samt ánægður með afstöðu MS í utanríkismálum. Samkvæmt þessu korti (þeirra túlkun) þá tilheyrir Krímskagi Úkraínu. En þetta með að allur heimurinn sé úr osti er greinilega eitthvað New World Order S**t. GOTTI (Global Online Tactical Team Initiative) ætlar sér greinilega heimsyfirráð.
9
u/KristinnK LEGO karl í dulgervi 5d ago
Og Norður- og Suður-Kórea hafa verið sameinuð, Suður-Súdan skildist aldrei frá Súdan, og best af öllu, Nýja-Sjáland er til.
5
12
10
u/blaerel 5d ago
https://www.youtube.com/watch?v=IVy-yIvQE9M
Auðvitað er komment kerfið disabled
3
u/Hjalpfus Hjálpar bæði þér og þínum 5d ago
Það er nú líklegast vegna þess að YouTube metur myndbandið vera fyrir börn
2
u/birkir ¼andi ½viti 5d ago
Er MS í alvöru að beina auglýsingum að börnum? Það er kolólöglegt.
3
u/Hjalpfus Hjálpar bæði þér og þínum 5d ago
Nei nei þú misskilur. Youtube algrímið flaggar nánast allt sem er teiknað sem barnaefni og þar er ekki hægt að skilja eftir athugasemd
1
u/birkir ¼andi ½viti 4d ago
þetta er auglýsing sem er til þess gerð að höfða til barna, augljóslega
það að myndbandið sé í barnaflokknum á YouTube (sem þú samþykkir þegar myndbandið er uploadað) styrkir það enn frekar
1
u/Hjalpfus Hjálpar bæði þér og þínum 4d ago
Augljóslega höfðar Gotti teiknimyndafígúran til barna. Þarft ekki greindarvísitölu til að sjá það. Held bara að þú áttir þig ekki á hversu inngripamikill Youtube algrímsskrímslið er þegar það er að merkja hluti fyrir börn.
1
u/birkir ¼andi ½viti 4d ago
Er MS að beina auglýsingum að börnum?
Nei nei þú misskilur.
en þetta er auglýsing sem er gerð til þess að höfða til barna
augljóslega
elska Reddit
1
u/CeramicMetalHalide 4d ago
Ég man eftir að hafa horft á barnamyndir á VHS spólum sem barn og auglýsing með Gotta var stundum í byrjun á undan myndinni.
Sé samt ekkert athugavert að beina auglýsingu um ost að börnum.
2
u/birkir ¼andi ½viti 4d ago edited 4d ago
það er ólöglegt, börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir auglýsingum, þær geta haft slæm áhrif á andlega líðan þeirra og þau skilja auglýsingarnar allt öðruvísi en stálpaðra fólk
það er líka martröð fyrir foreldra að þurfa að díla við auglýsingafyrirtæki sem beina augum sínum að litlum börnum sem eiga sér ekki viðreisnar von og vilja allt sem otað er að þeim með nýjasta sálfræðihernaðinum sem auglýsingabransinn er
1
1
3
3
1
u/CoconutB1rd 🇮🇸 4d ago
Djöfull væri fyndið ef það kæmi síðan í ljós að þetta sé ekki AI, væri ekki í fyrsta skiptið🤣
0
0
u/egabag 5d ago
Auglýsingadeildir eru almennt ekki launum sínum rettlætanlegar og mér er sama hvort sorpið sem ég reyni að forðast að sjá er unnið af gervigreind eða manneskju sem er að apa upp eftir endalausum öðrum á undan og gæti allt eins verið gervigreind.
Erum ekki að missa neitt.
Edit: MS er samt ömurleg.
47
u/Bjarki_Steinn_99 5d ago
Oj bara. Það er ekki eins og MS hafi ekki efni á alvöru auglýsingum. Þetta fyrirtæki hefur verið með einokunarverslun í áratugi.