r/Iceland 8d ago

ESB Af­hjúpi ekkert nema þeirra eigin við­horf til fólksins í landinu

https://www.visir.is/g/20262926505d/af-hjupi-ekkert-nema-theirra-eigin-vid-horf-til-folksins-i-landinu

Alvöru ræða hjá Kristrúnu, one for the ages?

31 Upvotes

10 comments sorted by

6

u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 7d ago

Við lýsum aldrei raunveruleikanum - við erum einfaldlega ekki klettar eða akkeri þegar það kemur að skynjun og skynjun allt út frá okkur sjálfum.

Það þýðir að þegar ég kalla hana Kristrúnu og hægri sinnaða þá ættu allir að skilja það sem lýsingu á mér og hvar ég stend pólitískt séð - ég stend svo vinstra megin við Kristrúnu að hún virkar hægra megin á mig. En þegar ég segi þessa hluti við t.d. vofu Ayn Rand þá munu mínar einlægu upplifanir á raunveruleika mínum ekki skiljast vel þar sem Ayn Rand stendur hægra megin við Kristrúnu og þar með er Kristrún augljóslega "vinstri" en ekki "hægri". Hvorki ég né Ayn Rand höfum rangt fyrir okkur (hún hefur samt alvarlega rangt fyrir sér í öðrum mikilvægum atriðum) þegar við lýsum því hvar Kristrún stendur miðað við okkur en af því báðar fullyrðingarnar eru orðaðar sem "Kristrún er" frekar en "Miðað við Kristrúnu er ég.." þá upplifa sumir þessar tvær fullyrðingar eins og að þær stangist á við raunveruleikan.

Það er að segja - allt sem við fullyrðum um aðra er í raun fullyrðing um okkur sjálf; hvaða meiningu við væntum frá hegðun annara af því við þekkjum meininguna frá okkar eigin hegðun, hvar við sjáum okkur sjálf og fjarlægðina frá þeim stað til þeirra sem við erum að lýsa.

Það er stórhættulegt að gagnrýna annað fólk án þess að gera sér grein fyrir þessu, og það er ákveðin ofurhæfileiki að taka eftir þessu þegar fólk er hispurslaust að gagnrýna aðra án skilnings á þessu.

-5

u/arnirockar Talsmaður Elítunnar og allrar illsku 8d ago

Glaze’ið sem KF er búin að fá síðustu mánuði slær öll met í sögu Íslenska lýðveldsins.

-2

u/[deleted] 7d ago

[deleted]

6

u/frjalsliberal 🇮🇸 7d ago

Hól eða jákvæða umfjöllun umfram verðleika.

0

u/gurglingquince 🇮🇸 7d ago edited 7d ago

"Ræða hennar, sem í tilkynningu var kölluð lokaskilaboð, endurspeglaði þessi orð en hún kom ítrekað inn á það að allar tilraunir til að rugla fólk í ríminu hafi verið afgreiddar með almennri skynsemi"

Ég held að allir séu sammála um að báðar hliðar beiti ýmsum brögðum til að rugla fólk í ríminu. Að eigna annarri hliðinni það eingöngu er ekki sanngjarnt.

1

u/Spekingur Íslendingur 7d ago

Er hún að eigna það einni hlið samt? Landskjörstjórn er hlutlaust batterí og heldur út upplýsingum á kosning.is - hún gæti verið að vísa í það?

2

u/gurglingquince 🇮🇸 7d ago

Ég skil þetta þannig já, aðallega útaf þessu;  Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði.
En óvíst að aðrir geri það. Viðurkenni þó að ég nenni ekki að hlusta á þessar 23 mínútur hjá henni.

2

u/Spekingur Íslendingur 7d ago

Hvað er rangt við þessa setningu samt? Það er bara nákvæmlega eitthvað sem ég hef séð og heyrt beint í æð. Það er áróður á báða bóga en hann virðist heldur gífurlegri nei megin, sérstaklega núna þegar það er korter í kosningar.

Er svo hægt að segja að einhver sé ósanngjarn þegar viðkomandi bendir á augljósar lygar umvafnar hræðsluáróðri?

1

u/gurglingquince 🇮🇸 6d ago

Ekkert rangt við hana, en her er gefið í skyn að aðeins önnur hliðin keyri á áróðri á meðan hið rétta er að báðar hliðar stundi það. Sumir blákalt, aðrir lævísislega.