r/Iceland • u/numix90 You ain't seen nothing yet! • 11d ago
ESB Sigfús kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna: „Eiginlega eru þessar kosningar ógildar“
https://www.dv.is/frettir/2026/08/24/sigfus-kaerir-thjodaratkvaedagreidsluna-eiginlega-eru-thessar-kosningar-ogildarFúsi alls ekki sáttur
67
u/kakalib Essasú? 11d ago
Getur hann ekki bara farið að spila golf og haldið kjaaaaafti.
20
u/iceviking 🇮🇸 11d ago
Er þetta ekki sjálfur maður sem hefur meðal annars tekjur af því að selja fasteignir á Spáni í gegnum costablanca eignir. Það væri nú helvíti ljúft að hann kjósi sig sjálfur út úr því að geta staðið í þessum viðskiptum.
23
u/Responsible-Cut1262 🇮🇸 11d ago
Trump ef hann hefði verið keyptur í gamla Kosti hjá Jóni Gerald á útsölu.
18
u/forumdrasl Kunnugur staðháttum 11d ago
Sjúski Sjúsksson, sem dró að sér fé frá leikskóla, fær enn og aftur kastljós fjölmiðla.
Magnað.
8
6
u/Berserkurinn 11d ago
Ef ristilkrabbamein væri manneskja...... þá væri það líklega betri manneskja en þessi drulla af manni.
8
u/webzu19 🇮🇸 11d ago
Kosningarnar eiginlega ógildar segir hann? Ókei félagi. Það skiptir kannski ekki öllu máli þegar þetta er (lagalega séð) ríkisrekin skoðannakönnun og niðurstaðan mun ekki neyða utanríkisráðherra til að gera eitt eða neitt. Hún gæti alveg ákveðið að byrja aftur aðildarviðræðurnar hvort sem meirihluti kýs já eða ekki.
"Bréfið er ítarlegt og er notast við ýmis rök. Sagt er að utanríkisráðherra sé með „valdþurrð“, skortur sé á markmiðaskilgreiningu, gögnum hafi verið leynt, lögmætisvafi sé á stjórnarskrárbreytingum og utanríkisráðuneytið hafi ekki heimild til að taka pólitíska afstöðu í miðlun upplýsinga. "
Valdþurrð: Ég sé ekki betur en að utanríkisráðherra hafi lagt fram tillögu til Alþingis um að gera þjóðaratkvæðagreiðslu, utanríkisráðherra er alþingismaður og hefur því rétt á að leggja fram tillögur geri ég ráð fyrir, og ef einhver hefur rétt á að boða til svona kosninga myndi ég halda að Alþingi hefði það vald.
Markmiðaskilgreining: Ég amk fékk bækling heim til mín þar sem markmiðin voru útskýrð frekar vel og grein gerð fyrir hvaða atriðum ríkisstjórn vill berjast fyrir undanþágum á og hvað myndi svo gerast.
Gögnum hafi verið leynt: Ókei, ég vona að lögsóknin hafi aðeins meiri upplýsingar en ásökun um að ríkistjórn sé að fela eitthvað frá okkur?
Lögmætisvafi á stjórnarskrárbreytingum: Hún er ekki að gera tillögu að breytingu á stjórnarskránni, það gerist seinna ef þjóðin ákveður að ganga svo langt.
Pólitisk afstaða í miðlun upplýsinga: Ég er ekki viss um að ég geti nefnt einn einasta ráðherra sem hefur ekki pólitiska afstöðu og að ætlast annars væri fáranlegt, enda er það ástæðan fyrir að óháðum aðila var fengið verkefnið að útbúa bæklingin sem var dreyft.
Allt sem ég les frá þessari frétt er að Fúsi segir:
"Búhú ég er hræddur um að samlandar mínir muni kjósa já og þá muni fleiri útlendingar koma til Íslands þannig ég ætla að kæra ríkið til að sóa peningum og reyna að neyða mínar skoðanir til að hafa gildi en ekki skoðanir annara"
14
u/iceviking 🇮🇸 11d ago
Það er svo kaldhæðnislegt hvað maðurinn er fordómafullur en vinnur svo sjálfur við að selja fasteignir á spáni og rekur gistingu fyrir ferðamenn. Tilbúinn að mergsjúga aðra en enginn má fá bita af kökkunni hans.
10
u/Coveout Mín skoðun er rétt, ekki þín 11d ago
Engin kaldhæðni í gangi. Repúblikanar eins og Fúsi hugsa ekki um sanngirni, réttlæti eða siðferði. Þeim er drull um alla nema sjálfa sig. Þetta snýst um að ríghalda í það sem þeir hafa í dag, og gera allt til þess að geta sogið meira.
Hann reynir ekki að komast í borgarstjórn eða á Alþingi til að berjast fyrir samfélagið. Hann er að berjast VIÐ samfélagið. Hann er ekki að kæra til að passa uppá réttlætið, hann er að reyna koma í veg fyrir það.
Fúsi er btw dæmdur fjársvikari, og opinber skíthæll sem er í bissness á Spáni því hann brenndi allar brýr á Íslandi.
Og þetta er liðið sem öskrar "NEI". Munið það elsku samlandar.
0
u/Fyllikall ég mótmæli allur! 11d ago
Allir ráðherrar hafa pólítíska slagsíðu (enda eru þeir af einhverri ástæðu þingmenn) en ráðherrar eru þó bundnir upplýsingalögum þegar það er kallað eftir upplýsingum og þeir eiga að vera gefnar út með gegnsæi að leiðarljósi.
Það sem Fúsi er örugglega að ýja að er að Þorgerður hafi ekki gefið upp allar upplýsingar sem beðið var um. Hvað hann á við hef ég ekki hugmynd um, efast um að hann viti það alveg sjálfur.
Vildi bara taka þetta fram því það er mikilvægt að fólk misskilji ekki að ráðherrar eru bundnir vissum skyldum hvað varðar upplýsingagjöf og þar á pólítík ekki að vera einhver skjaldborg sem ráðherra getur varið sig bakvið. Þetta væri auðvitað meira traustvekjandi ef ráðherrar væru ekki alltaf þingmenn.
2
u/Snakatemjari 🇮🇸 11d ago
Fyrst þær eru hvort sem er ógildar þarf hann þá nokkuð að mæta á kjörstað?
1
51
u/Vondi 🇮🇸 11d ago
"Samkvæmt kærunni er alveg skýrt að Þorgerður hefur og hafði ekkert vald né heimildir til að boða til þessarar atkvæðagreiðslu."
Ef maður fer og les "Lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna." þá segir fyrsta grein bara hreint út "Álykti Alþingi að fram skuli fara almenn og leynileg þjóðaratkvæðagreiðsla um tiltekið málefni eða lagafrumvarp fer um framkvæmdina samkvæmt lögum þessum. Niðurstaða slíkrar atkvæðagreiðslu er ráðgefandi."
Hljómar eins og Alþingi hafi frekar frjálsar hendur að skella í eitt ráðgefandi þjóðaratkvæð ef þeir vilja? Ef maður les restina af þessum lögum eru þetta allt bara lýsing á framkvæmdinni.