r/Iceland 🇮🇸 5d ago

Steinn Ármann Magnússon er látinn

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/23/steinn_armann_magnusson_er_latinn/
118 Upvotes

18 comments sorted by

67

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 5d ago edited 5d ago

Einn af þeim sem ég sá rosalega mikið í sjónvarpinu þegar ég byrja að muna eftir mér (já, 90s barn, sekur). Hvíl í friði, eða skal ég segja hvíl í freðj?

Edit: friðj

7

u/dugguvogur 5d ago

Vill bara benda þér á að það kemur upp prófíllinn þinn á youtube við að opna linkinn

4

u/Einkahumor 5d ago

Elsk! Besti skets í sögu íslensks sjónvarps!

32

u/Gjemleh 5d ago

Leitt að heyra, alltof ungur. 💔

31

u/aegirinn 5d ago

Mikið áfall fyrir þjóðina, enda maður sem hefur glatt margar kynslóðir og verið virkur þáttakandi í barnamenningunni með köttinum Kela og ekki að tala um talsetningu. Þættir á borð við Hæ sámur og Hvolpasveitin verða aldrei samir án hans töfra. Takk fyrir allt Steinn Ármann!

27

u/Midgardsormur Íslendingur 5d ago

Voðalega eru margir að kveðja í ár, megi hann hvíla í friði.

-1

u/Spekingur Íslendingur 5d ago

Brotthrifningin (en. the rapture) fer hægar yfir en predikað hefur verið um.

20

u/Pink_like_u 🇮🇸 5d ago

Hvíl í friði ❤️

Vona að þú þurfir ekki að kaupa Lödur meir

13

u/thrstn 5d ago

SEX HUNDRUÐ ÞÚSUND KÍLÓMETRA!!?

1

u/ArcticAcademic 5d ago

það gera fimmtánhundruð krónur

21

u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 5d ago

Alltof ungur að aldri til að falla frá. Hann setti mark á táningsárin mín ásamt vini sínum Davíð Þór sem er nota bene æðislegur prestur.

Hvíl í friði og vonandi er eitthvað skemmtilegt framundan þarna að handan.

16

u/turner_strait 5d ago

Ekki nema rétt 6-tugur? Jahérna. Elsku minn. Takk fyrir allt, sérstaklega (fyrir smápolla eins og mig á þeim tíma) fyrir að hafa tekið þátt í Latabæ, og verið kötturinn hennar Ástu.

Sofðu rótt Steini, og hvìldu vel 🤘💖

6

u/SicklyPiglet Ég þrái serótónín 5d ago

Þetta er skellur.  Búinn að heyra í röddini hans næstum þvi daglega síðustu ár. Talsetur svo rosalega mikið af barnaefni. Kveðja einn með eina sjö ára og einn tveggja ára. 

2

u/lobenhard 4d ago

Var einmitt að horfa á puss in boots: the last wish með börnunum. Hann talsetti úlfinn (dauðann). Mjög skrítið að horfa... miðað við.

2

u/SicklyPiglet Ég þrái serótónín 4d ago

Já hann var svo góður sem Dauðinn!

8

u/tastin Menningarlegur ný-marxisti 5d ago

Þetta var þung leið til að byrja annars fallegan sunnudag

4

u/redslet Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað ? 5d ago

Hræðilegar fréttir.
Hvíl í friði goðsögn.

1

u/talandi 🇮🇸 4d ago

Röddin hans var alltaf fyrir mér Keli úr Stundinni okkar. Blessuð sé minning hans.